|
|
Ráðgjöf
Í Rauðakrosshúsinu geta einstaklingar sótt sér fjármála-, lögfræði- og sálfræðiráðgjöf hjá sérfræðingum sem bjóða fram vinnu sína í samstarfi við Rauða krossinn. Sjálfboðaliðar í Rauðakrosshúsinu veita upplýsingar um hvaða gögn nauðsynlegt er að hafa meðferðis til að viðkomandi ráðgjöf nýtist sem best. Miðað er við að biðtími eftir ráðgjöf sé að hámarki ein vika. Að auki er föst viðvera presta eða djákna í Rauðakrosshúsinu milli 14 og 16 alla virka daga. Fólk er hvatt til að hafa samband strax og erfiðleikar gera vart við sig.
|
|
|