|
|
Sól og sumar í Rauðakrosshúsinu
28.06.2010
Haldin var sumargleði í Rauðakrosshúsinu á föstudaginn þar sem gestir fengu að smakka á dýrindis grillmat sem hjónin Stan og Ragga sáu um að marinera og grilla, himnesku salati sem Solla á Grænum kosti töfraði fram, sumardrykknum Sólroða og í eftirrétt var boðið upp á heimatilbúinn ís. Stemningin í húsinu var einstaklega skemmtileg og maturinn rann ljúft niður, líkt og sést á meðfylgjandi myndum.
|
Ertu með góða hugmynd Hugmynd
|